Tíðindi

Blóðugar skærur milli Tælands og Kambódíu

  07/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Fjórða daginn í röð eiga sér stað blóðug átök á landamærum Tælands og Kambódíu en þar er deilt um 900 ára gamalt búddamusteri sem tælensk stjórnvöld vildu setja á Heimsminjaskrá sem þjóðargersemi Tælands. Hafa mannslát orðið í skærunum.

Er þetta ekki í fyrsta sinn sem kemur til átaka milli þjóðanna vegna þessa musteris sem stendur á hárri hæð með prýðilegt útsýni yfir sléttur Kambódíu. Musterið fallega, Preah Vihear, hefur tilheyrt Kambódíu og það hefur Alþjóðadómstólinn í Haag staðfest.

Engu að síður vilja Tælendingar eigna sér staðinn en musterið trekkir að töluverðan fjölda ferðamanna árlega.