Vefmiðillinn Venere býður í dag og á morgun upp á 40 prósenta afslátt á allnokkrum hótelum í Barcelóna á Spáni. Þó borgin sú sé almennt séð ekki dýr eru fáir sem slá hendinni móti afsláttum á góðum hótelum.
Gildir tilboð Venere þó aðeins um gistingu á útvöldum hótelum í júní næstkomandi en standi ferð þangað á þeim tíma fyrir dyrum er þjóðráð að grípa gæs og elda.
Ritstjórn Fararheill.is hefur góða reynslu af viðskiptum við Venere. Tilboðssíða Venere hér.








