Tíðindi

Besta sætanýting nokkru sinni hjá Icelandair

  10/01/2011september 30th, 2014No Comments

Flugfélagið Icelandair þarf ekki að kvarta yfir nýliðnu ári. Það reyndist eitt það besta í sögu félagsins og var reyndar sætanýting í vélum þess sú besta frá stofnun. Aukinheldur fjölgaði farþegum félagsins verulega og tíu prósenta farþegaaukning er framundan í vetur.

Kemur þetta fram í tilkynningu Icelandair en fyrir sjö mánuðum síðan var forstjóri félagsins meðal þeirra sem sáu fátt nema myrkur og vosbúð í ferðamennsku eftir samdráttartíma vegna eldgosanna í Eyjafjallajökli. Settu stjórnvöld af stað sérstakt átak, Inspired by Iceland, sem hafði mælanleg áhrif og þegar upp var staðið var árið velflestum ferðaþjónustuaðilum gott.

Voru 14,4 prósent fleiri farþegar sem ferðuðust með Icelandair á þessu ári en 2009 og sætanýting var 78,4 prósent.