Vísindamenn verða sífellt fróðari um áhrif ýmis konar efna á líkamann. Sem kemur okkur öllum til hagsbóta ef okkur er ekki alveg sama á annað borð. Þeir hafa til dæmis fundið út að það er slæm hugmynd að brúka sólarvörur frá framleiðandanum Nivea en þær eru með þeim mest seldu hérlendis.

Í guðanna bænum ekki bera þetta á barnið þitt.
Ólíkt hinni íslensku Neytendastofu sem hefur of lítil efni til að gera merkilega hluti er annað uppi á teningnum í olíuríkinu Noregi. Þarlend neytendastofa sendir árlega fjölda vara sem seld eru í landinu í umfangsmiklar rannsóknir sem virt rannsóknarstofa sér um.
Samkvæmt þeim könnunum eru sólarvörur Nivea áberandi lakastar að gæðum og hafa beinlínis neikvæð áhrif. Þær vörur margar hafa neikvæð áhrif á hormónastarfsemi, kveikja ofnæmisviðbrögð meðal margra og geta haft neikvæð áhrif á erfðaefni í þokkabót.
Aðrar vörur sem falleinkunn fá í síðustu könnun samtakanna eru sólarvörur Garnier og Hawaiian Tropic sem einnig eru seldar hér á landi. Eiturefni í þeim helst til mörg.
Hins vegar eru vörur frá Cliniderm og Dermica lausar við efni sem valdið geta fólki tjóni.
Sjá má lista Norðmannanna hér.







