Árið 1982 kom fyrst fram tillaga í borgarstjórn London þess efnis að keyra helstu jarðlestir borgarinnar að næturlagi um helgar. Síðan eru liðin ein 33 ár og loks snemma í vor fékk tillagan brautargengi. Fyrstu næturlestirnar áttu að keyra af stað þann 12. september. En bið verður á því.

Hvenær verður hægt að fara með lest heim af djamminu í London? Einhvern tímann í haust. Mynd Hernan Pinera

Hvenær verður hægt að fara með lest heim af djamminu í London? Einhvern tímann í haust. Mynd Hernan Pinera

Það má heita farsakennt að eftir miðnætti í heimsborginni London með einna víðtækasta neðanjarðarlestarkerfi í víðri veröld verði gestir og gangandi að gera sér að góðu að hóa í leigara eða hossast í strætó til að komast til síns heima eftir kvöldstund úti á lífinu.

Svo sem ekkert slæmt við leigubifreiðar eða strætisvagna en þeir fyrrnefndu eru dýrir og þeir síðarnefndu lengi á leiðinni. Og hvorugt dugar til í borg þar sem talið er að 500 til 600 þúsund manns séu úti á lífinu á venjulegum föstu- og laugardagskvöldum.

Til stóð að þjónustan hæfist þann 12. september á fimm vinsælustu leiðunum en það verður ekki. Það gleymdist að semja við starfsfólkið og verkföll hafa sett strik í reikning. Samkvæmt breskum miðlum er þess varla að vænta að geta stokkið í lest eftir miðnætti fyrr en seint með haustinu eða í vetur.