Banni því við öllum vökva í handfarangri ferðalanga í flugferðum sem verið hefur í gildi um fimm ára skeið verður aflétt frá og með apríl á næsta ári í Bretlandi en mun ekki ná til Evrópu allrar fyrr en í lok árs 2013.
Kom þetta fram í máli Philip Hammond, samgönguráðherra Bretlands, en farþegum í millilandaflugi finnst fátt verra en reglan að aðeins megi taka með sér 100 millilítra af vökva og verði sá að vera í glærum plastpoka við öryggisleit.
Ástæða þessa eru endurbættir skannar sem gera það að verkum að þeir finna allan vökva í farangri og þurfa farþegar því ekki lengur að taka þá sérstaklega frá í poka. Þá verður ekki lengur takmarkað hversu mikið magn vökva má taka með sér í handfarangri.






