Á mánudaginn kemur hyggst ferðaskrifstofan Úrval Útsýn loks taka þátt í að bjóða Íslendingum alvöru tilboð undir nafninu Hurðarskellur. Ekki er um þykkskeggjaðan jólasvein að ræða heldur tímabundin tilboð til Tenerife og Kanarí en brottför er aðeins einum degi síðar. Um er að ræða fyrstir koma, fyrstir fá tilboð.
Hefur ritstjórn Fararheill.is gagnrýnt slík tilboð því í stað þess að lækka verð sín með betri fyrirvara keppast nú ferðaskrifstofurnar við að bjóða verulega afslætti sólarhring áður en lagt er af stað. Vitað er að það getur reynst fjandanum flóknara að koma slíku við. Hafa Iceland Express, Heimsferðir og nú Úrval Útsýn boðið slíkt síðustu vikuna.
Þar að auki kemur hvergi fram hversu mörg sæti eru í boði en samkvæmt vef ÚÚ eru nú, laugardaginn 2. apríl, aðeins fimm sæti eftir til baka í aðra ferðina. Nema ÚÚ ætli sér að bæta við vél vegna tilboðsins er í raun verið að hvetja fólk til að berjast um fimm sæti sem er illa gert gagnvart viðskiptavinum.
Að þessu sögðu er tilboð ÚÚ allgott því í boði eru annars vegar ellefu daga ferð til Tenerife á þriggja stjörnu hóteli fyrir 79.900 krónur á mann miðað við tvo. Hefðbundið verð er 118.350 krónur og því sparast 38.450 krónur komist fólk með litlum fyrirvara.
Hitt tilboðið eru tvær ferðir til Kanarí en í báðum tilfellum er gist ellefu nætur á þriggja stjörnu hóteli. Kostar pakkinn 77.000 krónur á manninn en hefðbundið verð er 126.550 krónur. Er það sparnaður upp á 49.550 krónur.
Býður ÚÚ einnig eina ferð seinna í sumar á tilboðskjörum. Er þar um að ræða viku á Kanarí 19. júlí á 79.000.
Aðeins er hægt að panta þessar ferðir milli klukkan 11 og 14 á mánudaginn 4. apríl á vef ÚÚ hér.






