Verslunarglaðir vita sem er að einhverjar stærstu útsölur Bretlands hefjast nánast um leið og fólk hefur tekið upp síðasta pakkann á jóladag. Þeir sem ætla sér að grípa glóðvolg tilboðin gætu gert vitlausari hluti en fljúga til og frá með Wizz Air.
Kíktum aðeins á flugfargjöld til London milli jóla og nýárs og í ljós kemur töluverður verðmunur á einu og sama fluginu.
Það má glögglega sjá dæmi um á meðfylgjandi skjáskoti. Þar flug aðra leið út til London þann 26. desember næstkomandi eða sama dag og risaútsölurnar hefjast í þeirri borg eins og öðrum breskum verslunum.
Án farangurs og þjónustu er Wizz Air að bjóða helmingi lægra verð en Wow Air sem aftur er að bjóða töluvert lægra fargjald en easyJet.
Verðmunurinn helst að stórum hluti þó fólk taki farangur með. Þá kostar stakt flug út með Wizz Air rétt rúmar tólf þúsund krónur meðan Wow Air býður farið lægst á tæpar sautján þúsund krónur. Það er heill fimm þúsund kall hvora leið fyrir sig og hvern munar ekki um minna?
Hafa skal í huga að fleiri flugfélög fljúga þessa leiðina en þau ofangreindu. Algjört lágmark að gera verðsamanburð nema peningar skipti þig engu máli.







