Flugfélag fólksins er ekki að vekja sérstaka athygli á töluverðum verðhækkunum flugfélagsins að undanförnu en ljóst er að nú er leitað allra leiða til að krækja í fleiri krónur hjá viðskiptavinum.

Allmörg fargjöld Wow Air hafa hækkað um níu krónur svo lítið beri á.

Allmörg fargjöld Wow Air hafa hækkað um níu krónur svo lítið beri á.

Greint hefur verið frá þeirri ákvörðun Wow Air að takmarka enn frekar þann farangur sem fólk má ferðast með án þess að greiða aukalega fyrir. Nú mega viðskiptavinir ekki fljúga með meiri handfarangur en sem nemur fimm kílóum á kjaft nema borga fyrir hvert umframkíló. Þetta í ofanálag við að greiða þarf fyrir annan farangur.

Fimm kílóa hámarkið er æði gróft hjá flugfélaginu því hefðbundnar handferðatöskur sem margir brúka eru oftar en ekki milli 1 og 2 kíló einar og sér og fara langleiðina í fjögur kíló sé um betri töskur á hjólum að ræða. Það er því í raun aðeins hægt að taka með í flug með Wow Air eitt til þrjú kíló af farangri án þess að greiða extra. Það eru um það bil einar þunnar nærur og vegabréfið.

Fyrir utan handfarangurstakmarkið hefur Wow Air einnig snarhækkað töskugjöld sín almennt og vei þeim sem gleymir að skrá tösku strax við netbókun því sá þarf aldeilis að greiða seðla í þokkabót á flugvellinum. Svona fimm þúsundkalla eða svo.

En þá er ekki allt upp talið. Sé bókunarvefur Wow Air skoðaður kemur í ljós að fargjöld þeirra á mörgum dagsetningum enda ekki lengur á XX.990 krónur eins og verið hefur. Nei, nú eru allmörg flugsæti félagsins verðlögð á XX.999 krónur.

Það kann að hljóma lítil og aumingjaleg upphæð en safnast þegar saman kemur og bankareikningur Wow Air hefði bólgnað um tæpar 700 þúsund krónur aukalega í júlímánuði ef sömu níu krónur hefðu lagst á alla farþega þann mánuðinn.

Nú bíður Fararheill bara eftir sérstöku klósettgjaldi hjá flugfélagi fólksins.