Ung familía á ferð. Greitt er sérstaklega fyrir sæti saman og með aukið fótapláss með margra mánaða fyrirvara. En þegar á Georg Hólm er komið stenst ekkert hjá Icelandair.

Fyndið hvað tíu til tuttugu manns aflæka Fararheill í hvert sinn sem við nefnum til sögunnar hörmungarþjónustu Icelandair og færum rök fyrir máli okkar.

Það segir okkur að annaðhvort eru hundruðir starfsmanna eða yfirmanna Icelandair að lesa vef okkar og þola ekki gagnrýni, eða að Icelandair á, þrátt fyrir einokunarprísa um áratugi, fullt af lítt viti bornum aðdáendum. Segið svo að Donald Trump eftirherma geti ekki náð völdum hér á klakanum.

Stjórn Icelandair þarf ekkert að segja upp fjölda fólks til að ná árangri. Aðeins að segja upp helstu stjórnendum sem virðast varla ráða við að draga andann og hvað þá meira…