Þ að er stundum óþarflega vandlifað í veröldinni. Fólk þarf orðið að vita deili á hinum ótrúlegustu hlutum til að standa ekki eins og út úr kú á köflum. Eins og til dæmis hvenær skal kyssa erlendis, hvar og hversu oft.

Hreint ekki sama hversu oft þú kyssir félaga, vin eða jafnvel ókunnugu erlendis. Mynd desigual

Hreint ekki sama hversu oft þú kyssir félaga, vin eða jafnvel ókunnugu erlendis. Mynd desigual

Auðvitað er kannski ekki daglegt brauð að smella kossi á mann og annan erlendis en þó er það ansi víða reglan að smella eins og einum þegar maður kynnist fólki, fer í boð eða whatnot. Og þá getur það sparað roðn niður í tær að vita upp á hár hversu margir kossar eru reglan á hverjum og einum stað. Það getur nefninlega verið ægilega vandræðalegt að hafa þetta ekki á hreinu.

Góðu heilli hafa bráðsniðugir kortagerðamenn Radical Cartography matreitt þetta líka fínasta kort ef einhver skyldi vera að velta fyrir sér hvernig skuli nú haga kossum í Frakklandi. Og þar er fátt einfalt eins og sést á meðfylgjandi korti.

Menn sleppa með tvo kossa í París og nágrenni en vei þeim sem ekki smellir þremur stykkjum á kinn sunnar í landinu við Montpellier. Allra verstir eru þó Korsíkubúar eða í það minnsta hluti þeirra. Þeir segja FIMM kossa algjört lágmark þegar fólk hittist.

Kossar