Hafi einhver þarna úti efast um hversu rótgróin neysluhyggja er hjá mörgu fólki ætti þetta að þagga niður í þeim hið snarasta. Samkvæmt viðamikilli könnun ferðamiðilsins Expedia upplifa 44 prósent fólks meiri nautn eftir að hafa keypt ódýran flugmiða en eftir kynlíf!!!

Nánast allt dásamlegt við veröldina lendir í öðru sæti á eftir ódýrum flugmiðum samkvæmt nýrri bandarískri könnun. Skjáskot

Það segir sitt um dapurt kynlífið hjá þessum fjölda að til þurfi fimm til fimmtán þúsund króna afslátt á flugmiða til að valda þvílíkum unaði að sæluvíma hríslast um allan líkamann frá toppi til táar. Þar kemur kannski ein skýring á gríðarlegum uppgangi lággjaldaflugfélaga í öllum álfum heims hin síðari ár.

Könnun Expedia náði til 80 þúsunda viðskiptavina fyrirtækisins milli 18 og 69 ára aldurs og kemur þar kýrskýrt fram að vel rúmlega helmingi finnst fátt yndislegra en að verða sér úti um flugmiða á kostakjörum. Tæplega 40 prósent sögðust „hamingjusamir“ í kjölfar slíkra kaupa og einn af hverjum fjórum sem tilboð gripu fengu á tilfinninguna að þeir væru „snjallari“ en fyrir kaupin.

Vinir og vandamenn eiga heldur ekki breik í lág flugfargjöld ef marka má könnunina. 61% aðspurðra sögðu tilboðsflugmiða mikilvægara en að eyða tíma með fjölskyldu og vinum. 70 prósentum fannst meira varið í ódýran flugmiða en bjór og vín.

Og svo framvegis og svo framvegis…

Eitt má ljóst vera, endurspegli þessi könnun raunverulega tilfinningar og þrár tugþúsunda Bandaríkjamanna, að heimur versnandi fer. Þegar vinir, ættingjar, félagsskapur, makar og kynlíf taka aftursætið fyrir tilboðum á flugmiðum er eitthvað verulega rotið í gangi. Sem kannski aftur skýrir hvers vegna sama þjóð kaus fávita og fífl sem forseta sinn.

Víst eru ferðir og ferðalög dásamleg. En það skiptir ekki öllu hvort flugmiðinn kostar 15 kall eða 50 kall ef ferðast er með vinum, ættingjum, mökum eða jafnvel ókunnugum. Það er jú það fólk sem gerir ferðalög á framandi slóðum skemmtileg og eftirminnileg. Ekki hræbilleg flugfargjöld.