Fáir hyggjast leggja land undir fót og halda erlendis yfir páskahátíðina ef marka má skoðanakönnun Markaðs- og miðlarannsóknar, MMR, sem gerði könnun á ferðaáætlunum fólks þessa vikuna.
Í ljós kemur að einungis 5,8 prósent aðspurðra segjast ætla að fagna páskunum á erlendri grund og 3,1 prósent sem hugðist ferðast bæði erlendis og innlendis næstu vikuna.
Vekja tölur MMR nokkra furðu því úttekt hjá ferðaskrifstofunum leiðir í ljós að velflestir ferðir þessa vikuna og þær næstu eru að mestu uppseldar.
944 þátttakendur voru í könnun MMR.







