Forstjóri ferðaskrifstofunnar Sumarferða segir það ekki í verkahring ferðaskrifstofunnar að láta alla farþega sömu ferðar vita þegar einn þeirra fær dæmdar skaðabætur vegna umtalsverðra tafa í skipulagðri hópferð.
Varð sólarhringstöf á ferð Sumarferða með vél Iceland Express síðasta sumar en það í raun breytti vikuferð til Tenerife í fimm daga ferð. Einn farþeginn fór fram á bætur en það eina sem Heimsferðir buðu var 15 þúsund króna inneignarnóta og ein frí nótt á hóteli ytra.
Kærði farþeginn til úrskurðarnefndar Samtaka ferðaþjónustunna og Neytendasamtakanna sem komist hafa að því að viðkomandi eigi rétt á bótum að upphæð rúmum 60 þúsund krónum.
Fréttablaðið náði tali af forstjóra Sumarferða sem segir það ekki vera á verksviði ferðaskrifstofunnar að gera fólki viðvart vegna skaðabóta eins farþega.
Hvað varð um sanngirni og heiðarleika spyr ritstjórn Fararheill.






