Þ ó Jóhannes Páll Páfi II hafi verið látinn um nokkurra ára skeið fer karlinn létt með að koma brosi á varir hóteleigenda í Róm þessi dægrin.
Svo mikill fjöldi fólks vill fylgjast með þegar páfi verður settur formlega í dýrlingatölu í Péturskirkjunni í maí að það skyggir auðveldlega á þann fjölda fólks sem hyggst fylgjast með brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins.
Svo mikill er áhuginn reyndar að öll gisting í Róm, sem þó státar af miklum fjölda hótela og gistihúsa, er næsta uppseld og berast fregnir af því að stöku gistihús sem í besta falli slefa í eina stjörnu á hótelskalanum heimti nú að lágmarki 47 þúsund krónur fyrir gistingu á mann eina einustu nótt dagana fyrir og eftir viðburðinn.
Að sama skapi er enn nægt framboð af herbergjum í boði í London í lok þessa mánaðar þegar Vilhjálmur Bretaprins hyggst giftast sinni heittelskuðu samkvæmt úttekt vefmiðilsins Trivago.






