Rúmlega 20 prósent Íslendinga hafa farið utan fyrstu þrjá mánuði ársins samkvæmt tölum Ferðamálastofu sem birti í dag tölur frá marsmánuði.
Fóru þannig 65 þúsund Íslendingar til útlanda gegnum Leifsstöð fyrstu þrjá mánuði ársins sem er rúmlega níu prósenta aukning frá árinu áður. Er þó aukningin helst í janúar og febrúar því mars í ár er svipaður og mars í fyrra.
Eru þó nokkrar líkur á að enn bætist talsvert við nú í apríl því fullbókað er í fjölmargar páskaferðir flugfélaganna og ferðaskrifstofanna.






