Tíðindi

Ferðalög fráleit í Japan næstu mánuði

  13/03/2011desember 21st, 2013No Comments

Óhætt er að fresta öllum skemmtiferðum til Japan næstu mánuðina því fyrr verður ekki hægt að ferðast um stóran hluta landsins ef marka má samgönguyfirvöld í landinu.

Segja þarlendir miðlar að mánuði að minnsta kosti taki að færa marga vegi og lesarbrautir í nothæft form auk þess sem nokkrir flugvellir þurfa verulega uppfærslur til að vera nothæfir á nýjan leik.

Tveir slíkir eru taldir með öllu ónýtir og er alþjóðaflugvöllurinn í Tokíó það laskaður að hann annar aðeins broti af þeim fjölda véla sem þar lenda öllu jöfnu.

Það er því ráð, hafi ferðalög í Japan verið á dagskránni, að fresta þeim að svo stöddu.