Tíðindi

Kaninn fílar Vegas og Orlando

  10/03/2011nóvember 23rd, 2014No Comments

Las Vegas og Orlando eru níunda árið í röð þeir staðir sem Bandaríkjamenn sjálfir hyggjast ferðast til á þessu ári samkvæmt viðamikilli könnun þar í landi. Ástæðan sáraeinföld; þar eru jú tonn af tilbúinni afþreyingu fyrir unga sem aldna.

Er fyrir alllöngu orðið ljóst að gerviheimar af mannavöldum heilla flesta Bandaríkjamenn meira í fríinu en aðrir áfangastaðir sem náttúrulegri eru. Vegas er jú mekka fjárhættuspila og glæsilegra sýninga af ýmsu taginu og þó Orlando borg sé nauðaómerkileg er stutt í leiktækin í Disneyworld og aðra slíka skemmtistaði.

Aðrir staðir sem á blað komust hjá kananum voru Los Angeles, San Francisco, New York, Miami, San Diego, Washington og Honolulu.