Svo undarlega sem það hljómar þá skiptir ekki öllu máli þegar keyptir eru flugmiðar hjá hvaða leitarvél eða flugfélagi þú leitar heldur einnig HVENÆR þú leitar.
Þetta leiðir könnun sem Wall Street Journal lét gera á flugleitarvélum á vefnum í ljós og eftir tíu vikna skoðun komust þeir að þeirri niðurstöðu að ódýrustu flugfargjöldin fást alla jafna síðdegis á þriðjudögum. Klukkan þrjú nánar tiltekið.
Ástæða þessa er að mörg flugfélög bjóða bestu verð sín eða sértilboð á sunnu- eða mánudögum, lækka þau á þriðjudögum og jafnvel miðvikudögum og hækka þau svo á nýjan leik þegar líða fer að helgi.
Ritstjórn Fararheill.is er ekki meðvituð um að slíkt sé stundað af Icelandair né Iceland Express enda samkeppnin hérlendis öllu minni en víðast hvar erlendis. Þó skal hafa í huga að fleiri og fleiri flugfélög hafa gripið til þess ráðs að meina flugleitarvélum að birta bestu verð sín og er því aðeins hægt að finna þau á vefsíðum flugfélaganna sjálfra.






