Tíðindi

Umhverfisvænir Indverjar og Kínverjar

  09/12/2010september 29th, 2014No Comments

Svo merkilegt sem það nú er þá virðast það vera Indverjar og Kínverjar sem bera hvað mesta virðingu fyrir náttúrunni ef marka má nýja könnun.

Leiðir hún í ljós að flugfarþegar frá þessum tveimur löndum kolefnisjafna allt að 44 prósent af flugferðum sínum.

Eru þetta töluvert fleiri farþegar en kolefnisjafna flugferðir sínar til dæmis í Bandaríkjunum og Evrópu þar sem hlutfallið hefur verið milli átta og tólf prósent þegar best lætur. Koma tölurnar úr viðamikilli könnun SITA á tólf af stærstu flugvöllum heimsins.

Hér heima á Fróni er teljandi á fingrum annarrar handar hversu margir greiða aukalega fyrir kolefnisjöfnun. Svo fáir reyndar að engin innlend flugfélög bjóða lengur upp á slíkt en Icelandair reyndi það um langa hríð hér áður með litlum árangri.