Það kannski liggur í augum uppi þegar hugsað er út í það en sennilega kemur einhverjum á óvart að 80 prósent barna segjast hafa mikil áhrif á hvert foreldrarnir fara í ferðalög. Þá eru 97 prósent þeirra viss um að foreldrarnir láti yfirleitt eftir þeim hvað gera á í sumarfríinu.
Var könnun þessi gerð í Bretlandi fyrir Ferðamálaráð Dubai en líklega er sama sagan uppi á teningnum víðast hvar í Evrópu.
Og börnin eru orðin kröfuhörð samkvæmt sömu könnun. Flott hótel með skemmtilegum sundlaugum er ekki að gera sig lengur því börnin vilja prófa nýja hluti. Ævintýri á borð við skíðaferðir, fjórhjólaferðir og sund með sjávardýrum eins og höfrungum þótti velflestum frábært. Þó er ljóst að sumar og sól heillaði krakkana mun meira en ekki.






