Fjórir hlutir sérstaklega fara fyrir brjóstið á ferðalöngum í erlendum löndum samkvæmt viðamikilli könnun Transperfect sem er leiðandi aðili í tungumálakennslu í heiminum.
Eiga niðurstöðurnar varla að koma á óvart enda velflest okkar sem ferðumst lent í þessum fjórum aðstæðum einu sinni eða oftar.
Kvartanirnar fjórar snérust um:
- Almenningssamgöngur erfiðar – Mörgum þykir erfitt að skilja og átta sig á samgöngumöguleikum í erlendum borgum. Þetta er sérstaklega mikilvægt nú þegar ferðalög almennt eru að verða dýrari og fleiri vilja ferðast fyrir minni upphæðir en áður.
- Vandræði á veitingastöðum – Tungumálaörðugleikar eru sérstaklega erfiðir á veitingastöðum þar sem þjónar tala ekki staf í erlendum tungum né eru matseðlar á fleiri tungumálum.
- Merkingar óskiljanlegar – Víða eru skilti og merkingar óskiljanlegar fyrir erlenda ferðamenn. Það á jafnvel við á stórum og vinsælum ferðamannastöðum.
- Hótelbókanir á netinu – Enn eiga margir í erfiðleikum með hótelbókanir á netinu. Á það sérstaklega við bókanir á smærri hótelum og gistihúsum sem bjóða takmarkaðar eða engar upplýsingar gegnum netið.
Niðurstöður Transperfect hér.






