Þó kreppa knúi enn dyra hjá velflestum landsmönnum sem ekki áttu milljónir á bókum fyrir hrun fælir það ekki frá nýjar ferðaskrifstofur og ein slík hóf starfsemi í dag. Kilroy Travel hefur ekki áður rekið útibú hér en ferðaskrifstofa þessi er kunnug frá Skandinavíu og Íslendingar eru meðal stærstu eigenda.
Kilroy er ekki það ódýrasta sem býðst, þó vissulega sé samkeppni ekki mikil hérlendis þrátt fyrir margar ferðaskrifstofur, en þar er lögð áhersla að þjónustu stúdenta og nema sem sjá vilja heiminn einir síns liðs eða í hóp. Þar hefur Kilroy mikla reynslu og getur aðstoðað með ólíklegustu hluti.
Ferðaskrifstofa stúdenta hafði á sínum tíma umboð fyrir ferðir Kilroy og voru þær vinsælar þá.
Heimasíða Kilroy hér.






