Tíðindi

Sólarsprettur Plúsferða

  01/05/2010maí 17th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Plúsferðir hyggst bjóða sértilboð til valinna áfangastaða sinna í sumar en tilboðin verða aðeins í boði í einn sólarhring mánudaginn 3. maí 2010.

Tekur ferðaskrifstofan dæmi um ferð til Tenerife á Kanaríeyjum á ákveðnum dögum í júní og kostar þá ferðin 79.900 miðað við þriggja manna fjölskyldu sem dvelur í viku. Flug og gisting innifalið. Portúgal er einnig í boði samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Plúsferð og er þar um vikudvöl að ræða fyrir fimm fullorðna og eitt barn á 69.900 krónur á haus.

Verðin virðast hreint ágæt miðað við það sem er í boði fyrir íslenska ferðalanga þessar síðustu og verstu en það verður að teljast með eindæmum að auglýsa sérverð byggt á fimm fullorðnum og einu barni.