Formlega heitir hátíðin Dagur maí krossins, Día de Cruz de Mayo, en það er ólíkt betri hljómur í Hátíð hinna skreyttu krossa enda er það svo að bæjarbúar í Granada leggja sig alla fram um að skreyta krossa sína og trúartákn með blómum þennan dag.
Hátíðin hefst snemma með göngum trúaðra um helstu götur og þótt trúin sé í forgrunni er talsverð samkeppni milli hverfa og gatna að skreyta götur, byggingar og krossa stóra sem litla þennan dag. Þannig má sjá einstakar skreytingar víða og lyktin sem af öllum þessum fallegu blómum kemur er ekki til að kvarta yfir. Þá er það samdóma álit þeirra sem ferðast hafa hvað mest um Spán og Íberíu skagann allann að Granada sé sjálf ein af fallegri borgum og borgarstæðum í landinu.
Ekki skemmir heldur fyrir að hin stórkostlegu mannvirki Alhambra gnæfir yfir borgina en hafi fólk ekki gefið sér dag þar er lífið innantómara en ella. Eitt af undrum Spánar og þótt víðar væri leitað.
Borgin stendur í skugga Nevada fjallanna í um tveggja klukkustunda fjarlægð frá Torremolinos og Marbella og tæplega þriggja tíma fjarlægð frá Alicante. Erfitt getur þó verið að finna stæði nálægt miðbænum og þá er vænlegra að panta gistingu þennan dag með nokkrum fyrirvara.






