Nánast fimm mínútum eftir að tilkynna um frábærar viðtökur landsmanna við tilboðsferðum sínum fram í apríl berast fregnir frá ferðaskrifstofunni Iceland Express þess efnis að fækka þurfi ferðum töluvert í janúar sökum slælegrar sölu.
Hefur þar af leiðandi verið fækkað 20 áætlunarferðum félagsins til Kaupmannahafnar og London í janúar og öllum þeim er bókað höfðu í viðkomandi ferðir boðið að skipta um tímasetningu. Segir framkvæmdastjóri félagsins í fjölmiðlum að þeir hafi einungis verið of bjartsýnir með framboð sitt í janúar en ljóst sé nú að Íslendingar hinkri frekar með ferðalög en áður á þessum tíma.
Vert er að benda þeim á er svo er statt um að viðkomandi eiga kröfu á flugfélagið vegna slíkra vinnubragða.






