Það allra yndislegasta við vefinn og framþróun hans er fjöldi þeirra vefmiðla sem nú gera allt fyrir þig sem við áður þurftum að gera sjálf. TripIt er einn þannig vefur en gegnum hann má skipuleggja og komast hjá töfum og veseni.
Virkar TripIt þannig að ferðalangar senda þeim ferðaáætlun sína og fær til baka með vefpósti eða beint í símann allar upplýsingar er viðkoma ferðinni. Tafir á flugvöllum? Eru aðrar leiðir fljótfarnari? Ertu að missa af einhverju? Gleymdirðu að panta sérstakt sæti í vélinni? Öllu þessu svarar TripIt og lætur þig vita í tíma.
Sjá vefinn hér.






