Af og til þegar rólegt er á ritstjórn Fararheill.is gerum við gjarnan eitthvað stórkostlegt eða fáránlegt. Ein af fáránlegri hugmyndunum er hin glænýja keppni: Myndarlegasta borg heims. Er sú úttekt gölluð á alla kanta en það sem meira er um vert þá er hún skemmtileg.
Snýst keppnin um að telja saman fjölda ljósmynda á vefnum Fickr.com fyrir hverja borg fyrir sig en þótt aldrei verði það vísindaleg úttekt þá gefur hún kannski pínulitla mynd af hlutfallslegum vinsældum hverrar borgar fyrir sig.
Leitarorðin voru öll á engilsaxnesku, ensku öðru nafni, en við vitum mætavel að sú talning á aðeins við um þá enskumælandi ljósmyndara sem borgina heimsækja. Það getur líka kannski útskýrt efstu tvö sætin.
Myndarlegustu borgirnar á Flickr.com í ágúst 2009 eru þessar:
- London – 8.1 milljón mynda alls
- New York – 7.3 milljónir mynda alls
- París – 6.2 milljónir mynda alls
- Berlín – 2.7 milljónir mynda alls
- Barcelona – 2.7 milljónir mynda alls
- Los Angeles – 2.2 milljónir mynda alls
- Róm – 2.1 milljón mynda alls
- Amsterdam – 2.0 milljónir mynda alls
- Madrid – 1.5 milljónir mynda alls
- Feneyjar – 1.4 milljónir mynda alls.








