Ítarleg könnun meðal viðskiptavina ferðaskrifstofa á netinu gefur sterklega til kynna að verðlag á ferðum er aðalatriðið sem hugsanlegir kaupendur líta til þegar ferðalag er pantað. Þar á eftir kom aðgengi að upplýsingum um staðinn, kort af staðnum og myndir.
Könnunin var framkvæmd af einni deild Frommer samsteypunnar en Frommer er stærsti úgefandi ferðahandbóka í Bandaríkjunum og einn af risunum á þeim markaði.
Afstaða fólks til vefferðaskrifstofa var einnig mæld og kom í ljós að verst þykir fólki þegar upplýsingar um ákveðinn stað þykja ófullnægjandi eða eru keimlíkar staða á millum.
Enda er það svo í raun að margar stærri ferðaskrifstofur lýsa tveimur mismunandi stöðum við sömu ströndina eða á sömu eyjunni með svipuðum eða sama hætti. Það gefur í skyn að ferðaskrifstofan hafi í raun annaðhvort ekki kynnt sér staðinn í þaula eða þyki beinlínis í lagi að afrita meira eða minna sama texta milli fleiri en eins staðar til að spara.
Um þetta eru velflestar íslenskar ferðaskrifstofur og flugfélögin líka rammsek sem og líka það næsta sem ferðaþyrstir kvörtuðu yfir sem voru rangar eða úreldar upplýsingar um áfangastaði. Það þótti benda til að ferðaskrifstofur væri ekki á tánum fyrir viðskiptavini sína. Gott dæmi um slíkt er fésbókarfærslan hér að neðan af vef Vita ferða sem fjarri því er ein um að senda ekki eigið fólk til að taka út áfangastaði sem eru lofaðir í hástert.
Skýrsluna er að finna hér en greiða þarf fyrir aðgang.









