Tíðindi

Brýtur Wow Air evrópsk neytendalög?

  15/02/2013desember 22nd, 2013No Comments

Sem betur fer finnast erlendis tals- og umboðsmenn neytenda sem gera annað en bora í nefið og bíða eftir að fjallið komi til Múhammeðs eins og raunin virðist vera hjá hinni íslensku Neytendastofu. Til dæmis umboðsmaður neytenda í Danmörku en ekki þarf lengi að stúdera niðurstöður mála þess embættis til að á mann renni tvær grímur um viðskiptahætti Wow Air.

Fararheill sagði fyrir nokkrum árum frá kærumáli Evrópusambandsins fyrir tilstilli umboðsmanns neytenda í Danmörku á hendur sjö flugfélögum sem auglýstu verð á hinum ýmsu flugferðum sínum án þess þó að tiltaka fullt verð með öllu. Slíkt brýtur í bága við evrópskt neytendalög og öll flugfélögin töpuðu málinu.

En Wow Air auglýsir, og hefur um margra mánaða skeið, auglýst sín lægstu verð án þess að geta þess að ofan á þau leggst svokallað bókunargjald. Það gjald er þó ekki sjáanlegt fyrr en fólk er komið inn á bókunarvél fyrirtækisins. Þannig er raunverð, eins og Fararheill hefur ítrekað fjallað um, ekki 14.900 krónur á lægstu tilboðum Wow Air heldur 15.800 krónur þegar að bókunargjaldið bætist við.

Ritstjórn sér ekki betur en Wow Air sé að brjóta þarna lög og hefur leitað staðfestingar á þessu hjá viðkomandi umboðsmanni neytenda í Danmörku. Því á danskri vefsíðu Wow auglýsir fyrirtækið líka verð án bókunargjalds.

Fararheill leikur líka hugur að vita hvort loforð Wow Air um lægra verð stenst dönsk og evrópsk neytendalög og sendi fyrirspurn þessa efnis líka. Wow Air lofaði á síðasta ári á fésbókarvef sínum að bjóða ALLTAF ALLTAF lægsta verð á flugi án þess að tilgreina nánar hvað það merkti. Nýjasta loforð Wow er „lægra verð“ sem einnig er teygjanlegt út í hið óendanlega en í það minnsta í Danmörku er ólöglegt að auglýsa með slíkum hætti án þess að geta vottað það með einhverjum hætti. Þýðir það lægra verð en öll flugfélög á öllum flugleiðum á öllum tímum? Neytendur eiga fullan og skýran rétt á að vita hvað svona yfirlýsingar fyrirtækja þýða.

Við látum vita þegar umboðsmaðurinn hefur svarað erindi okkar.