Flugumferðastjórar virðast vera með frábær laun samkvæmt opinberum gögnum. Samt hóta þeir verkfalli….

H vað væri óskandi að fjölmiðlar landsins væru aðeins sterkari á svellinu en þeir eru. Nei, annars, við skulum umorða þetta. Óskandi væri að fjölmiðlar landsins væri 99 prósent sterkari á svellinu en þeir eru. Þið vitið, svona til að vernda dýrmætt lýðræðið.

Þá kannski fengjum við svör við öllum þeim aragrúa spurninga sem sitja eftir þegar hugsandi fólk horfir, les eða hlustar á fréttir þessa síðustu og verstu.

Illu heilli eru allir fjölmiðlar landsins feitt að spara til að moldríkir eigendurnir geti nú grætt eitthvað á almannaþjónustu. Meðalaldur blaðamanna á stóru fjölmiðlunum slefar í 24 árin sem þýðir að það fólk er tiltölulega ódýrt til vinnu og hefur ekki vit, reynslu eða þekkingu til að greina milli innantóms kjaftæðis og raunverulegra frétta sem eiga erindi við okkur öll sem greiðum skatta. Ungt fólkið þorir eðlilega heldur ekki að gera atlögu að „frægum” þingmönnum eða forstjórum jafnvel þó oftast sé full ástæða til. Það útskýrir, að okkar mati, að stórum hluta hratt fallandi hlustun, lestur og áhorf á fréttir. Almenningur er ekki vitlaus og flestir, nema kjósendur sjálfstæðisflokks, fatta þegar innantómt blaður eða yfirborðskennd þvæla er á dagskránni 24/7.

Tökum sem dæmi launadeilur flugumferðarstjóra síðustu vikurnar. Samningur liggur nú fyrir félagsmönnum eftir margra vikna kjaraþóf en óljóst hvort þeir hafna eða samþykkja.

Flugumferðarstjórar starfa hjá ríkisfyrirtækinu Ísavía og eru sem slíkir opinberir starfsmenn okkar allra hvort sem þeim líkar betur eða verr.

Ekki margir miðlar hafa fjallað um kjaradeilur þeirra en RÚV reyndi að gera málinu skil með þessari frétt hér. Þar hefur fréttamaðurinn vit á því að spyrja forsvarsmann flugumferðarstjóra út í frétt DV þess efnis að meðalmánaðarlaun þessa fólks séu EIN OG HÁLF MILLJÓN KRÓNA.

Ósköp eðlileg spurning þegar almenn meðallaun á Íslandi rétt slefa yfir sex hundruð þúsund krónur. Flugumferðarstjórar hafa tvöfalt það og gott betur samkvæmt frétt DV.

Víst bera flugumferðarstjórar mikla ábyrgð og það á mannslífum svona í og með. Mistök hjá þeim geta auðveldlega kostað hræðileg slys og jafnvel dauða fjölda fólks. Sjálfsagt og eðlilegt að greiða þeim vel og hafa vinnutímann eins skamman og kostur er svo enginn sé nú þreyttur á vaktinni.

Að okkar mati er ein og hálf milljón í mánaðarlaun, eða ÁTJÁN MILLJÓNIR KRÓNA á ársgrundvelli feit og fín laun fyrir ábyrgðarmikið starf. Það bara tæplega TÍU MILLJÓNUM hærra en árslaun íslenska meðalplebbans.

Sem sagt, ekkert til að kvarta yfir. Þú átt jú 1,1 milljón eftir til að eyða í vitleysu í hverjum mánuði þegar skattmann hefur fengið sitt. Eða hvað?

DV greindi meðal annars frá því að meðallaun flugumferðarstjóra væru tæp ein og hálf milljón króna á mánuði. Arnar segir að þessi umfjöllun hafi ekki haft áhrif á viðræðurnar. „Nei það held ég ekki, og þessu umfjöllun sem þú vísar til, sérstaklega í einum fjölmiðli er ekki svaraverð, lágkúruleg og ég ætla ekkert að kommenta meira á hana.

Hmmm!

Formaður Félags flugumferðastjóra, Arnar Hjálmsson, gefur 100 prósent skít í frétt DV sem þó var, merkilegt nokk, unnin upp úr skattaskrám og tölum frá Hagstofu Íslands. Hann gefur algeran skít í fjölmiðlinn DV og neitar staðfastlega að ansa nokkru um hvort hann og hans fólk séu gráðugir skítaplebbar eða vilji bara það sem sanngjarn er.

Flott hjá DV. Töluvert minna flott hjá Arnari. Geðþóttafullt svar hans gefur nefninlega sterklega í skyn að 1,5 milljónir króna SÉU RAUNVERULEGA MÁNAÐARLAUN FLUGUMFERÐARSTJÓRA. Sé það raunin er tóm græðgi að hóta verkfalli til að hækka mánaðarlaun sem eru þegar 150 PRÓSENT hærri en meðallaun í þjóðfélaginu.

Nema hvað, sökum þess að blaðamaður RÚV gengur ekki á formanninn vita landsmenn ekki nokkurn skapaðan hlut um hvort flugumferðarstjórar hafa raunverulega gengið græðginni á vit eða vinna fram úr hófi fyrir skítalaun.

Það er nefninlega oftast raunin að þegar fólk vill ekki svara spurningum er einhver að hitta naglann á hausinn. Og ekki gleyma að þegar flugumferðastjórar fá launahækkun þá hækka lendingargjöldin á flugvöllum og þannig hækkar miðaverðið fyrir okkur plebbana út í heim og heim aftur.

Algjört lágmark að svara spurningum með öðru en skítkasti og algjört lágmark að fréttamenn leyfi ekki skíthausum að komast upp með slíkt.

PS: fyrir forvitna þarna úti þá eru meðal mánaðarlaun þýskra flugumferðarstjóra rétt um sex hundruð þúsund krónur samkvæmt vefnum SalaryExplorer. Bara HELMINGI LÆGRI en þeir íslensku eru þegar með.