
Tæpum tveimur mánuðum eftir fyrsta flug Play eru uppsagnir í loftinu. Skjáskot
Hmmm! Hvar ættum við að byrja? Skoðum aðeins fréttina:
Flugmönnum og flugliðum flugfélagsins Play hefur verið boðið að taka á sig allt að 50% lækkun á starfshlutfalli gegn því að fá fastráðningu í vetur en þessi hugmynd var rædd á fjarfundi sem stjórnendur Play héldu með starfsmönnum félagsins á miðvikudag sl. Heimildir Morgunblaðsins herma að hljóðið í flugmönnum sé þungt eftir fundinn.
Hugmyndin að breytingunum kom ekki frá stjórnendum, að sögn Birgis Jónssonar, forstjóra Play. „Ég var nú reyndar ekki á fundinum sjálfur en það er mikilvægt að árétta að þessi hugmynd kemur ekki frá stjórninni heldur vaknar hún hjá hópnum.“
Þá segir hann starfsmenn ekki hafa verið tilneydda til að lækka starfshlutfall sitt heldur sé með þessu boði verið að reyna að tryggja að fleiri starfsmenn fái fastráðningu í vetur og forða þannig fólki frá því að lenda í atvinnuleysi.
Ýmsar spurningar vakna:
A) Flugmenn og flugþjónar vilja skoða að skerða eigið starfshlutfall. Samt er þungt í þeim hljóðið?
B) Vilja forða fólki frá atvinnuleysi TVEIMUR MÁNUÐUM eftir að flugfélagið hóf sig til lofts? Samt eru allir flugmenn fastráðnir og hluti flugþjóna líka. Vilja 36 fastráðnir flugmenn og -þjónar helminga starfshlutfall sitt og tekjur til að um 30 lausráðnir starfsmenn fái eitthvað gera í vetur? Hattur ofan fyrir því en langsótt mjög.
C) Vilja forða fólki frá atvinnuleysi en samt er Play að fá nýjar vélar og vertíðin í vetur framúrskarandi björt samkvæmt fregnum að undanförnu?
D) Hvers vegna er forstjórinn sjálfur ekki á stórum fundi þar sem framtíð starfsfólks er til umræðu?
E) Má þá kannski búast við að ferðum verði fækkað í vetur frá núverandi áætlun?
Hvað skal eiginlega halda? Sala farmiða hjá Play er líklega ekki jafn góð og af er látið ef lausráðið starfsfólk er sent út á guð og gaddinn fimm mínútum eftir fyrsta flugið…







