Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti er ferðaskrifstofan að bjóða sérstök fargjöld undir heitinu sólarlottó þessi dægrin.
Það fallegt heiti yfir óvissuferð því í þeim ferðum veit viðskiptavinur ekkert hvar gist er fyrr en komið er á staðinn. Það er því oft dálítið happa glappa og lítið þýðir að kvarta ef gististaðurinn reynist ekki uppfylla væntingar.
En í þessu tilfelli er ekki um óvissuferð að ræða að neinu leyti og fólk er hreint ekki að spara eina krónu á að taka þátt í umræddu „sólarlottói.”
Ástæðan sú að aðeins fjögurra stjörnu gisting er í boði í lottóinu og þar sem Úrval Útsýn býður einungis upp á einn fjögurra stjörnu gististað á Krít má ljóst vera að sólarlottósfarþegum verður komið fyrir þar.

Skjáskot af vef ÚÚ.
Alles gut með það enda ágætur gististaður og enginn ætti að fara þaðan súr í bragði. Verra kannski að verðmiðinn á „sólarlottóferðinni” er HÆRRI en ef þú bókar bara fjögurra stjörnu hótelið beint á vef ÚÚ á sama tímabili. 146.900 krónur á kjaft í sólarlottóinu en 146.500 krónur ef þú bókar fjögurra stjörnu hótelið strax í upphafi.
Samkvæmt okkar kokka- og orðabókum er langt í frá að slíkt falli undir að vera TILBOÐ af neinu tagi. Það til mörg önnur verri orð yfir slíka viðskiptahætti.







