Þ yrlur og hraðbátar eru notaðir til að ferja erlent ferðafólk frá mörgum af helstu sumarleyfisstöðum Tyrklands vegna skógarelda sem geysa víða við suðurströnd landsins.

Allt eðlilegt við að leika sér í strandblaki þegar þúsundir ferkílómetra brenna í grenndinni. Skjáskot NDNews

Átta manns hafa látið lífið í eldunum það sem af er en þeir geysa á allt að fimmtíu stöðum nálægt hinum vinsæla strandstað Fethiye sem er einn þeirra sem tilheyrir hinu þekkta Antalya-héraði landsins. Sá er þó í töluverðri fjarlægð frá bænum Antalya sem Íslendingar margir þekkja vel.

Um er að ræða verstu skógarelda í Tyrklandi í rúm tíu ár en stjórnvöld telja töluverðar líkur á að um íkveikju hafi upprunalega verið að ræða.

Sömu stjórnvöld segjast nú hafa eldana sæmilega undir stjórn en það er jú skíthællinn Recep Erdogan sem ríkjum ræður hér og engin ósköp að marka það sem frá honum eða hans stjórnvöldum kemur. Sé bara miðað við fréttamyndir eru margir ferðamannastaðir við ströndina í mikilli hættu.