
Ríkisflugfélag Grænhöfðaeyja ekki lengur í eigu milljarðamæringa frá Íslandinu góða og það góðu heilli.
Hmmmm!
Það kostar seríöst vesen fyrir ríki hvarvetna í heiminum að taka yfir einkafyrirtæki í fluggeiranum. Leiðindi frá Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO; leiðindi frá Alþjóðaflugyfirvöldum heims, IATA; leiðindi frá Heimsbankanum, World Bank, og leiðindi frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, IMF, enda allar þær stofnanir stofnaðar og reknar af hálfu vestrænna fyrirtækja.
En ríkisyfirtaka var nákvæmlega það sem stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum, Capo Verde, gerðu í vikunni þegar stærstu eigendur eina flugfélags landsins, Capo Verde Airlines, stóðu ekki við sitt. Og stærstu eigendur Capo Verde Airlines síðustu árin voru Icelandair og mektarmenn þess flugfélags síðustu misserin. Mektarmenn á borð við Björgólf Jóhannesson sem lengi réði ríkjum hjá Icelandair, gerðist forstjóri Samherja þegar allt var í volli og er helst þekktur fyrir að skila fyrirtækjum sínum feitu tapi ár eftir ár.

Fyrrum forstjóri Icelandair, Björgólfur Jóhannsson, er líklega einn allra versti yfirmaður veraldar miðað við gengi fyrirtækja sem hann kemur nálægt. Mynd SÍA
Hvað Icelandair og bestu vinir aðal gera við peningana sína kæmi okkur ekkert við ef ekki væri fyrir þá staðreynd að það flugfélag hefur þurft á ríkisaðstoð að halda aftur og aftur og aftur síðastliðin ár vegna skítareksturs. Ríkisaðstoð er, fyrir þá sem ekki kunna að leggja saman tvo og tvo, peningar skattborgara.
Jamm, þú skildir þetta rétt: Peningana okkar.
En hvers vegna skuldar Icelandair okkur hér hjá Fararheill þúsundkall? Jú, út af þessari grein okkar frá september 2018 þar sem við skrifðuðum þetta sem niðurlag:
Þúsund kall á að þessi útrás Icelandair endar með ósköpum fyrr en síðar með tilheyrandi frekara tapi fyrir lífeyrissjóðsþega landsins…
Viti menn! Stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum hafa tekið yfir flugfélagið þar sem hinir íslensku gúrúar gerðu svo mikið upp á bak að Wikipedia íhugar að útbúa heilan nýjan flokk fyrir skitu á bak.
Í öllu falli, eins og við spáðum fyrir um Iceland Express, Wow Air, Primera Air og fleiri aðila, fær Fararheill stóran plús í kladdann fyrir spádómsgáfur sínar. Oft er nefninlega gests auga töluvert betra en auga rándýrs sérfræðings…







