E kki ein íslensk sála, fyrir utan forráðamenn Icelandair, hafði nokkuð við það að athuga að Wow Air tæki til starfa sem flugfélag árið 2012. En arftakinn Play er á kafi í veseni hist og her um þjóðfélagið. Hvað veldur?

Gott eða slæmt fyrirtæki? Mynd Play

Hmmm!

Gætum við talað um versta start nýs íslensks fyrirtækis frá upphafi byggðar? Eða er kannski er öll fjölmiðlaumfjöllun um Play komin úr fórum fólks sem a) er beinlínis heimskt, b) þekkir ekki betur, eða C) er á mála hjá Icelandair?

PLÚSARNIR:

  • Miðað við súperfeita álagningu Icelandair á öllum helstu flugleiðum er ekkert minna en nauðsynlegt að fá samkeppni á helstu leiðum. Vissulega eru til staðar erlend flugfélög sem fljúga sömu eða svipaðar leiðir og Icelandair en þau eru alls ekki að horfa til almennings á Íslandi við ákvarðanir sínar.
  • Flugfélagið bauð strax ferðir beint til vinsælustu áfangastaða Íslendinga eins og Kanaríeyja og Alicante. Staðir sem ríkisstyrkt þjóðarflugfélagið Icelandair hefur hundsað alla tíð og eingöngu lagt sig eftir seðlum útlendinga.

MÍNUSARNIR:

  • Flugfargjöld Play eru heilt yfir 20 prósent dýrari en flugfélagið Wow Air bauð á sínum tíma sömu leiðirnar. Það þrátt fyrir að leiguflugvélar séu nú heilt yfir á útsöluprís og það þrátt fyrir að eldsneytisgjöld séu þessa stundina 25 prósentum lægri en þegar Wow Air tók til starfa 2012. Fargjöld ættu því að vera lægri en Wow Air bauð best fyrir níu árum síðan. En eru ekki.
  • Stjórnendur Play virðast undantekingarlítið vera mjög vafasamir einstaklingar. Forstjórinn, einn helsti eigandinn og minnst einn stjórnarmanna eru í rannsókn hjá skattrannsóknarstjóra fyrir hugsanleg skattalagabrot langt aftur í tímann. Kannski saklausir en skattrannsókn hefst yfirleitt ekki nema eitthvað verulega vafasamt sé á kantinum. Svo var forstjórinn lengi vel að starfa fyrir einn helsta svindlara Íslandssögunnar: Pálma Haraldsson.
  • Play hefur gert kjarasamning við súpervafasamt stéttarfélag. Stéttarfélag sem var líklega stofnað yfir feitum slatta af rauð- og rósavíni af fyrrum flugmönnum Wow Air. Réttindi starfsfólks Play sirka 25% lélegri en Wow Air bauð og strípuð laun flugþjóna sirka á pari við heildarlaun atvinnulausra.
  • Play byrjaði mótið á að auglýsa fargjöld sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum eins og við greindum ítrekað frá og það næstum tveimur árum eftir að fyrirtækið var stofnað með miklu húllumhæi sem kostaði fleiri milljónir króna.
  • Forráðamenn Play, sem margir störfuðu hjá Wow Air á sínum tíma, hafa að líkindum stolið öllum mikilvægum flugrekstrargögnum síns gamla flugfélags til að fá flugrekstrarleyfi hjá Samgöngustofu.
  • Flugfélagið ætlar í útboð á næstu sólarhringum. Lágmarksboð í hlut verður 18-20 krónur. En samkvæmt hlutafjárlýsingu félagsins geta forstjórinn og helstu stjórnarmenn keypt hluti í félaginu allt niður í 8 krónur per hlut. Bara 130% lægra verð en fjárfestum býðst í upphafi og það þrátt fyrir að ýmsir stjórnendur séu til rannsóknar vegna skattalagabrota. Allt eðlilegt við það og velkomin til Íslands.

Við fjögur hér beggja blands. Annars vegar hafa tveir skrifendur þegar skráð sig fyrir hlutum í Play en hinir tveir ætla aldrei að leggja lag sitt við neitt sem flugfélagið kemur nálægt. Það er lýðræði í hnotskurn 🙂

En hvað ætlar þú að gera?