
Hin fagra eyja Kýpur fær toppeinkunn vísindamanna. Tíu sýni frá tíu strandsvæðum eyjunnar reyndust fullkomlega tipp topp.
Umhverfismálaráðherra Evrópusambandsins tilkynnti þetta með pompi og prakt fyrr í vikunni en hér er um að ræða niðurstöður 40 ára rannsókna á vatnsgæðum í vötnum og sjó í og við Evrópu af hálfu sérstakrar stofnunar sem sérhæfir sig í slíkum rannsóknum.
Vitaskuld er hængur á eins og alltaf sem ekki kemur fram í tilkynningu ráðherrans. Sá hængur að umræddar rannsóknir taka ekki til nútímavandamála á borð við plastmengun. Svo ekkert sé minnst á að rannsóknin kemur lóðbeint í fésið á hundruð nýlegra hafrannsókna sem sýna að mengun í heimshöfunum eykst duglega ár frá ári.
Að því sögðu er það eyjan Kýpur sem fær gullpálmann. Tíu sýni voru tekin við tíu vinsæl strandsvæði eyjunnar og allt var fullkomið. Kýpur eina pleisið sem fær toppeinkunn en heilt yfir reyndust vötn álfunnar og sjóvatn við vinsælustu strendurnar standast helstu kröfur sambandsins. Aðeins 297 staðir af 23 þúsund alls reyndust svo mökkmengaðir að engu tali tekur. Margar strendur Bretlands þar í flokki.
Niðurstaðan stemmir reyndar að mestu við niðurstöður Bláfánastofnunarinnar, Blue Flag, sem hefur lengi tekið saman upplýsingar um hreinleika strandsvæða á heimsvísu. Þar fá strendur Evrópu að stærstu leyti fína einkunn.







