T ólf til sextán gráðu hiti að meðaltali yfir háveturinn, kjaftfullt af forvitnilegum hlutum, menningu og stórkostlegum mat og þangað komist í beinu flugi héðan og heim aftur niður undir 30 þúsund krónur.

Einhver orðinn spenntur?

Eðlilega líka því flugfélagið Wizz Air var í vikunni að bæta átján flugleiðum til og frá bækistöð flugfélagsins í Napolí á Ítalíu og þar á meðal til Keflavíkur 🙂

Þetta súperdúper í öllu tilliti. Napolí ekki bara ein og sér frábær áfangastaður heldur er næsta nágrenni allt skoðunar virði. Þá er ennfremur auðvelt að komast áfram þaðan til ljúfra grískra eyja eða tyrneskra baðstranda og það á sama ágæta verðinu.

Hvað er svo prísinn? Wizz er að bjóða fyrstu ferðirnar á sérstaklega lágu verði og eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti er hægt að skottast fram og aftur í nóvember UNDIR 30 þúsund krónum. Þar reyndar ekkert meðferðis nema handfarangur en tilboðið samt príma.

Muna samt að þetta eru tímabundin tilboð sem gætu hækkað fyrirvaralaust hvenær sem er. Því óvitlaust að negla fljótlega ef áhugi er á ítölsku borginni í vetur. Svo er kjörið að brúka hótelleitarvél okkar hér að neðan til að fá gistingu á lægsta mögulega verði 😉