Ellefta sætið varð hlutskipti flugfélagsins í könnun sem VR framkvæmdi fyrir tveimur til þremur mánuðum síðan og birti niðurstöðurnar nýlega. Á þeim tíma voru sirka 20 starfsmenn hjá fyrirtækinu og það varla tekið formlega til starfa sem flugfélag.
Hvernig fyrirtæki sem var, þegar könninun var gerð, tæknilega aðeins nafnið og engin formleg flugstarfsemi hafist nær inn á lista sem Fyrirmyndarfyrirtæki 2021 er ekkert minna en fráleitt og dregur mjög úr trúverðugleika þessara kannanna VR.
Lenti enda fyrirtækið á fimm sekúndum sléttum upp á kant við Alþýðusamband Íslands, þar sem VR er aðili, um leið og fjölga þurfti starfsfólki fyrir mánuði síðan. Og fyrirtækið svindlað og svínað í þokkabót eins og Fararheill hefur sýnt fram á.
Líklega eru Fyrirmyndarfyrirtæki VR aðeins minni fyrirmyndarfyrirtæki en við gerum okkur grein fyrir…







