
Skjáskot af vef RÚV um deilur ASÍ og Play. Kannski ætti einhver góðhjartaður vinur forstjóra Play að benda honum á að kaupa sólgleraugu eða venjuleg gleraugu. Nema auðvitað að hann sé að þykjast vera frá Laos.
Við hér næstum gráti næst. Nýtt lággjaldaflugfélag tekur til starfa; og ekki veitti af því, en fimm mínútum síðar varar stærsta launþegafélag landsins sterklega við að eiga nokkur viðskipti við umrætt flugfélag þar sem flugfélagið er að greiða grunnlaun sem slefa varla í atvinnuleysisbætur.
Hmmm!
Í gærdag birtum við okkar dóm og byggðum þar á úttekt Viðskiptablaðsins sem sýndi án vafa að Play er ekki að greiða lægstu laun á Íslandi né heldur lægri laun en Icelandair. Þvert á móti er Play er greiða starfsmönnum sínum BETRI LAUN en Icelandair og það stórmerkilegt fyrir lággjaldaflugfélag. Fyrir utan auðvitað, að það er kjánalegt að bera eitthvað saman við Icelandair því það fyrirtæki er aðeins á lífi vegna ríkisaðstoðar síðasta árið.

Eitt hundrað sæti á kostakjörum. Þau voru sögð uppseld á sléttum tuttugu mínútum… Mynd Play
Til að bæta gráu ofan á svart bauð hinn sænsk-íslenski ferðavefur Túristi upp á afar hentuga grein um hvað Wizz Air greiðir nú engan tekjuskatt í heimalandinu á sama tíma. Tímasetningin merkileg en ekki þegar haft er í huga að Túristi, ólíkt Fararheill, selur sig og auglýsingar hægri vinstri eins og sextug vændiskona. Þeir aðilar ekki í bransanum til að hjálpa fólki heldur fyrirtækjum. Sem útskýrir hvers vegna allir innlendir fjölmiðlar vitna reglulega í Túrista en aldrei Fararheill.
Víst er Viðskiptablaðið, sem eðli máls samkvæmt gengur erinda hinna vellauðugu á kostnað plebbanna, ekki besta stoppið en á þeim tímapunkti var enginn annar fjölmiðill að kafa ofan í tölurnar. Tölur sem við hér höfum ekki aðgang að og getum ekki tekið okkar eigin afstöðu. Á sama tíma buðu Fréttablaðið, Mbl, Vísir og RÚV aðeins upp á geldar fréttir um ósættið milli aðilanna án þess að bjóða upp á tölfræði til að sanna eitt né annað.
Jón, Gulla og við hér hjá Fararheill því algjörlega í myrkrinu varðandi hugsanleg launaundirboð Play því enginn fjölmiðill nema VB reyndi að setja hlutina upp á mannamáli og með tölum og staðreyndum.
En svo kom þetta frá Alþýðusambandi Íslands í morgun.
Við hér engu nær um neitt. Play setur fram sitt og ASÍ sitt og himinn og haf á milli. Hvað er rétt og hvað er rangt? Er Play raunverulega að greiða hærri laun en Icelandair? Eða er Play að greiða þvílík skítalaun að leitun er að annars staðar en í Ungverjalandi, Serbíu og Gambíu?
Við höfum ekki hugmynd og samt búin að lesa allt draslið. ENGINN fjölmiðill reynir að varpa ljósi á stöðuna og þeir sem það gera virðast vera uppi á þaki að spila á fiðlu. Kranablaðamennska virkar sæmilega þegar tveir einstaklingar deila um eitthvað einskisvert en ekki annars. Við þurfum skýr svör en ekki kranablaðamennsku.
PS: Við báðum Play að senda okkur kjarasamninga sína en svörin engin.







