M erkur dagur fyrir ferðaþyrsta því nýtt íslenskt lággjaldaflugfélag, Play, hóf sölu farmiða til nokkurra ljúfra áfangastaða. Verst að þeir byrja á því að brjóta íslensk lög.

Nei, við ekki að tala um hugsanlegt svindl og svínarí á launum eins og Alþýðusamband Íslands gefur í skyn. Og víst er 250 kall í grunnmánaðarlaun fyrir flugþjóna ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Við erum hins vegar að tala um grjóthart 100 prósent brot á lögum landsins. Nánar tiltekið þessi lög hér:

Aflýsing á meðallöngu flugi

Ef meðallanga fluginu þínu er aflýst, þá áttu rétt á vali á milli annars flugs eða endurgreiðslu. Þú gætir líka átt rétt á skaðabótum.

Ofangreint stendur í Evrópureglum sem Ísland verður að fylgja. Skoðaðu svo skjáskotið hér að ofan þar sem flugfélagið Play segir gróflega á ensku: Play endurgreiðir engin fargjöld nema fólk kaupi þartilgerða aflýsingartryggingu og öðrum skilmálum sé fylgt. Nota bene; slík aflýsingartrygging kostar manninn tvö þúsund krónur!!!!!

Þetta merkir, gott fólk, að forsvarsmenn Play, hafa ekki lært staf af einu né neinu. Þeirra fyrsta hugsun, í stað þess að hugsa um viðskiptavininn og setja hann í fyrsta sætið þá ákveða þessir leikmenn (players) að traðka á lögum landsins til að græða nú hugsanlega oggupons meira á þessu skitna liði sem vill fljúga með þeim…

Slæm byrjun. Virkilega slæm byrjun. Ekki síst þar sem nokkrir lífeyrissjóðir okkar landsmanna eru að styrkja þetta batterí. Kom það fjármagn án allra skilyrða? 🙁

– TJ