A llt lítur óneitanlega betur út hjá Play eftir að forstjóri þess gaf út að flugfélagið ætli sér ekki að leggja heiminn að fótum sér heldur fara sér hægt.

Staðan lítur mun betur út hjá Play. Mynd Play

Ágætt viðtal við Birgi Jónsson, forstjóra Play, í Fréttablaðinu þennan daginn. Þar listar forstjórinn upp flest það sem við hér höfum bent á að til þurfi til að Play nái flugi. Við sendum reikning fljótlega 🙂

Fram kemur að Play muni ekki geta keppt í verði við til að mynda Wizz Air en verði fullfært um samkeppni við Icelandair. „Við munum heldur ekki geta keppt við félag eins og Wizzair í verðum, en þar getum hins vegar keppt við Icelandair.”

Ekkert á að koma á óvart í þessu. Helsta ástæða þess að Wizz Air getur boðið svo lág fargjöld sem raun ber vitni er lágur launakostnaður. Velflest starfsfólk Wizz kemur frá Ungverjalandi og meðallaun þar almennt 50-60 prósent lægri en hérlendis.

Birgir ítrekar að innan Play hafi menn lært sitt af flugi og falli Wow Air. „Ég er hins vegar mikill talsmaður þess að hætta að tala um stórar tölur; veltuna, fjölda flugvéla, farþegafjöldann – þetta skiptir í reynd engu máli. Okkar nálgun núna í Play er að vera frekar með bara lítið flugfélag. Við ætlum ekkert að sigra heiminn og vera með fleiri tugi véla í rekstri – heldur vera fókuseraðir, einblína á afkomuna og virðið sem við erum að búa til fyrir viðskiptavininn. Það voru þessir hlutir sem fóru áður úrskeiðis í þessum íslensku lággjaldaflugfélögum.”

Vel sagt! Spennandi tímar í hönd.