L engi má deila um hvað er nauðsyn og hvað ekki á þessum síðustu og verstu. En ein góð ástæða fyrir ferðalögum er að halda upp á stóra áfanga í lífinu.

Seint talinn amalegur staður þessi Krít…

Fararheill fékk skeyti:

Hæ Fararheill, takk fyrir fróðlegan og skemmtilegan vef. Við hjónin kynntumst fyrir 20 árum á Krít í sumarleyfi og langaði þangað aftur þetta sumarið til að halda upp á áfangann á sama stað án þess að standa í sóttkví og vandræðum. Hver er skásta leiðin til að komast þangað vandræðalítið? Kostnaður ekkert aðalatriði en ekki verra ef þetta er hægt án þess að leigja einkavél. Kveðja Karl Ólafsson.

Flott hugmynd hjá hjónakornunum og Krít er í heimsmetabók Guinness fyrir ljúflegheit. Grísk stjórnvöld ætla að opna allt landið fyrir ferðafólki um miðjan maí miðað við stöðuna núna en aðkomufólk þarf annaðhvort að vera bólusett eða með glæný neikvæð vottorð frá lækni.

Því er til að svara að besta leiðin er gegnum ferðaskrifstofur á borð við Vita eða Úrval Útsýn. Báðar bjóða pakkaferðir í beinu flugi frá júní og okkur sýnist ódýrasti pakkinn á la-la hóteli í tíu daga vera kringum 130 kall á kjaft eða 260 þúsund fyrir parið. Nokkuð góður díll. Einnig er í boði að taka bara flugið og þá er kostnaður kringum 100 þúsund á mann sem er ekki góður díll.

Að öðru leyti er líklega vænlegast að fljúga gegnum Mílanó á Ítalíu. Þangað flýgur Wizz Air beint héðan og fjöldi ferða fram og aftur kringum 20 til 30 þúsund á mann. Wizz Air flýgur líka beint frá Mílanó til Krítar og þegar þetta er skrifað hægt að fljúga fram og aftur niður í tíu til fimmtán þúsund krónur án farangurs. Ítalía er líka hálfopið land og til stendur að opna það að fullu með sumrinu en að líkindum þarf vottorð eða bólusetningu.

Með ofangreindum hætti má komast alla leið til Krítar fyrir þetta 40 til 50 þúsund á mann eða svo alla leið héðan með farangur meðferðis. Í tilfellum þarf að gista nótt í Mílanó en það verður seint talinn slæmur kostur. Vesenið meira en á móti kemur er fólk þá ekki niðurnjörvað á tilteknum stað eða hóteli á Krít.

Góða ferð 🙂