Franska flugfélagið Air France er þessi dægrin að bjóða aldeilis safarík flugtilboð til Ríó De Janeiró í Brasilíu frá París. Tilboð sem þýðir að við hér á klakanum komumst fram og aftur fyrir hundrað þúsund kallinn á kjaft…

Þessi klikkar seint og alls ekki á súperkjörum.
Það er með betri dílum því algengt hefur verið að fljúga þá leiðina fyrir þetta 120 til 130 þúsund krónur síðustu árin og þótt bærilegt héðan af klakanum.
Smá mínus reyndar að flogið er á sardínufarrými og farangursheimild er ræfilsleg með afbrigðum. En hvað lætur maður sig ekki hafa til að heimsækja einhverja flottustu borg heims?
Tilboð Air France gilda frá París á tilteknum dagsetningum næsta vor og sumar og hægt er að dóla sér í Brasilíu í þrjár vikur mest fyrir þennan pening. Það þarf aðeins að leita samt 😉
Til að bleiknefjar frá Fróni geti notið þessa tilboðs út í æsar þarf að bóka flug til Parísar með Transavia en þegar þetta er skrifað er þangað komist fram og aftur fyrir gróflega 22 þúsund krónur eða svo án farangurs.
Um að gera að taka inn París í dag eða tvo áður en haldið er áfram í hitann suðurfrá en flugtími frá Frans eru rúmlega ellefu klukkustundir hvora leið fyrir sig. Óspennandi sannarlega en þvælingur í Ríó og nágrenni er þess virði.
Út með oss 😉







