Jamms. Þú ert á sömu blaðsíðu og við hér sem rennur kalt vatn milli skins og hörunds á fimm mínútna fresti að vera föst á Fróni. En það eru ráð við því. Eða hvernig hljómar jólastemmari í hinni fínu borg Dortmund og það fyrir svo mikið sem tíu þúsund kallinn.

Útför á príma jólamarkað fyrir tíu þúsund kall? Já takk. Skjáskot
Fátt jafnast á við þýska jólamarkaði eins og kunnugir vita. Þeir ekki heimsfrægir fyrir ekki neitt. En með tilliti til Kófsins og alls kyns boða og banna mætti auðveldlega draga þá ályktun að túrar á slíka markaði séu utan þjónustusvæðis þessi jólin.
Abbabb! Ekki svo fljót á ykkur 🙂
Það er nefninlega svo að við getum vel heimsótt þýska jólamarkaði þessa vertíðina ef miðað er við Kófreglur í Þýskalandi þegar þetta er skrifað. Við gætum dúllast um með jólaglögg í máli um allar trissur í iðnaðarborginni Dortmund og það fyrir svo lítið sem TÍU ÞÚSUND KRÓNUR fram og aftur.
Það er tilboð sem sómi er að og það er gegnum Wizz Air sem við neglum slíkt. Þangað flýgur ungverska flugfélagið þráðbeint héðan næstu mánuðina og sallaauðvelt að finna sæti fram og aftur rétt fyrir jól á kostakjörum þegar þetta er skrifað. Hafðu þó hugfast að verð breytast ört upp á við þegar nær dregur.
Vitaskuld gáfulegt að hafa hugfast að Kófreglur bæði hér og í Þýskalandi gæti breyst fyrirvaralaust á morgun eða eftir mánuð en þá líka ágætt að muna að fargjaldið var bara tíkallinn og enginn stór skaði skeður ef við komumst svo ekki.
Svo er þjóðráð að finna gistingu í Dortmund eða annars staðar í heiminum með sjöföldum heimsmeistara bókunarvéla hér að neðan 🙂







