Sörpræs, sörpræs. Allir þeir sem tóku þátt í nýlegu hlutafjárútboði Icelandair þar sem hvert bréf í félaginu kostaði heila eina krónu HAFA ÞEGAR TAPAÐ helling á fjárfestingunni.

Við lengi sagt að sitjandi forstjóri Icelandair viti ekkert í sinn haus og stöndum við það. Mynd Icelandair

Forsvarsmenn lífeyrissjóðsins Gildis eru vonandi að halda staffapartí þetta kvöldið til að klappa sjálfum sér á bakið. Þeir eyddu aðeins 1,5 milljarði króna í nýlegu hlutafjárútboði Icelandair. Hundrað milljónir króna farnar fyrir lítið rúmum mánuði síðar.

Sömuleiðis hlýtur að vera feit kaka og blöðrur á borðum hjá forsvarsmönnum lífeyrissjóðs LRS hvers fjárfesting í Icelandair hefur þegar kostað lífeyrissjóðsfélaga 150 milljónir króna.

Hvert bréf í flugfélaginu, sem losaði sig við allar merkilegar eignir í aðdraganda útboðsins í lok september, fæst nú á heila 90 aura. Krónubréfin ekki alveg þessi súperdíll eins og af var látið.

Sem væri auðvitað ekkert til að hafa áhyggjur af ef þriðja bylgja Kófsins væri ekki að gera óskunda á öllum helstu mörkuðum flugfélagsins. Hvort sem um er að ræða Bandaríkin, Frakkland, Spán, Bretland, Holland, Belgíu, Ísland eða Þýskaland þá er meira ris á vírusnum en nokkru sinni hjá Ron Jeremy í klámmyndabransanum.

Bréf Icelandair hafa ALDREI náð einni krónu í kjölfar krónuútboðs flugfélagsins í lok september. Skjáskot

Sem aftur er lítið til að hafa áhyggjur af ef Icelandair ætti eignir hægri, vinstri. Því miður hefur flugfélagið selt frá sér mestallt sem eitthvað virði er í og stendur nú berskjaldað gagnvart framboði og eftirspurn í flugi. Framboðið sleppur en eftirspurnin engin og verður líkast til engin næstu mánuði og jafnvel ár eins og við hér spáðum. Þeir 26 milljarðar króna sem félagið fékk í útboðinu duga fram í febrúar í besta falli.

Og við sem héldum að lög bönnuðu áhættufjárfestingar hjá lífeyrissjóðum landsmanna…