Þökk sé Seðlabanka Íslands hefur Tæland nánast í vetfangi farið úr því að vera stórkostlega ódýr áfangastaður í svona nett Portúgal fyrir krónueigendur. Tælenskt baht kostar nú 55% meira en raunin var 2017.

Göngugata í Phuket í Tælandi. Í landinu er nánast allt í lamasessi enda túrismi mun stærri hluti af þjóðarkökunni tælensku en hér. Þess utan eru mótmæli fólks á götum úti orðin daglegt brauð.
Við áður tæpt á þessu en þið munið hvað sagt er um kveðnar vísur. Eða hversu aum er íslensk króna að tapa 50 prósenta verðgildi gagnvart gjaldmiðli lands sem hefur orðið enn harðar úti í Kófinu en Íslandið góða.
Svo rammt kveður að, að eins og sjá má á meðfylgjandi töflu hér að neðan, hefur að líkindum aldrei verið dýrara fyrir Jón og Gullu að heimsækja Tæland. Hvert baht kostar nú 4,44 krónur en kostaði í byrjun árs 2017 aðeins 2,85 krónur.
Þetta merkir auðvitað að allt í Tælandi er nú 50 prósent DÝRARA en það hefur verið frá árinu 2013 heilt yfir. Og það munar um minna.

Króna versus baht síðustu tíu árin. Krónan slök sem endranær. Mynd XE.com
Ekki svo að skilja að Tæland sé mikið opið fyrir erlenda ferðamenn þegar þetta er skrifað og þar geysa nú mikil mótmæli gegn gerspilltri konungsfjölskyldu landsins. Uppfylla þarf töluvert að skilyrðum til heimsóknar þessi dægrin.
En það gæti breyst næstu misseri og fyrir þá fjölmörgu þarna úti sem geta ekki á sér heilum tekið nema stytta veturinn í Tælandi er ráð að hafa bak eyra að túrinn kostar nú helling meira en áður.
Takk Seðlabanki!







