„Innkoma Par Capital Management er frábær viðbót við okkar sterka hóp fjárfesta. Við höfum trú á að samstarf við Par Capital muni auka virði Icelandair Group verulega. Það er jafnframt jákvætt að þessi þaulreyndi alþjóðlegi fjárfestir hafi sömu sýn og við á framtíðarvöxt félagsins.”

Stærsti fjárfestir Icelandair síðustu árin hefur nú losað sig við allt hlutafé. Mynd Icelandair

Svo mörg voru orð forstjóra Icelandair, Boga Nils Bogasonar, í apríl 2019, þegar stór bandarískur vogunarsjóður, Par Capital, keypti tæplega tólf prósent af hlutafé flugfélagsins.

Sjóðurinn, sem fjárfest hefur duglega í flugfélögum undanfarin áratug, varð þar með stærsti staki hluthafi hins íslenska flugfélags.

Þarna þótti greinilega vera komin sönnun þess að Icelandair var á réttri leið því hvers vegna annars ætti stór erlendur fjárfestir að setja milljarða króna að veði ef vöxtur og vellíðan væri ekki gefið mál í framhaldinu.

Alas, sami vogunarsjóður hefur nú losað sig við ÖLL BRÉF sín í flugfélaginu og það fimm mínútum eftir að velflestir lífeyrissjóðir landsins tróðust hvor um annan að fjárfesta í nýlegu neyðarútboði. Fjárfesting sem tap hefur verið á síðan útboðinu lauk.

Gengi bréfa Icelandair frá frægu björgunarútboði fyrir mánuði síðan. Skjáskot

Vissulega sá „enginn” Kófið 2020 fyrir frekar en Hrunið 2008. En það vekur athygli að stór bandarískur fjárfestir hendi slæmu fé á eftir góðu nú þegar hlutabréfaverð í Icelandair er nánast í botni. Fari gengi bréfa mikið neðar en þegar er orðið heyrir Icelandair endanlega sögunni til. Að stærsti staki fjárfestir félagsins skuli ekki hafa trú núna segir okkur að spekingar Par Capital eru sammála okkar hér hjá Fararheill. Icelandair verður á nippinu fjárhagslega svo lengi sem ekki finnst bóluefni við Kófinu og líf fólks færist aðeins í eðlilegra horf. Og fátt bendir til að bóluefni skili sér fyrr en seint í vetur og þá tekur ár hið minnsta að bólusetja heilu og hálfu þjóðirnar.

Á þeim tímapunkti verður ágætt að vita hvar forsvarsmenn þeirra lífeyrissjóða sem hentu milljörðum króna í bréf Icelandair eru búsettir. Þeir þurfa nefninlega að standa fyrir máli sínu…