Norsk yfirvöld björguðu lággjaldaflugfélaginu Norwegian frá gjaldþroti með milljarða króna ríkisaðstoð í maímánuði. En flugfélagið þarf líklega mun meira fjármagn strax í byrjun næsta árs.

Norwegian þarf líklega töluvert meira fé til að lifa af veturinn.
Flugfélagið tilkynnti um milljarðatap á fyrsta helmingi ársins þennan daginn og lítið óvænt við þá niðurstöðu. Öllu merkilegra að forstjóri flugfélagsins segir ekki ólíklegt að það versta sé enn framundan í flugrekstri og ekki síður að milljarða-innskot stjórnvalda dugi félaginu mögulega aðeins fram að áramótum.
Ástæðan fyrir því að milljarða króna björgunarpakki dugar að líkindum ekki til að bjarga flugfélaginu er sú staðreynd að flugsamgöngur eru að mestu leyti enn í lamasessi víðs vegar um heiminn. Norwegian getur og ætlar að bjóða töluvert af ferðum strax í vetur en gallinn sá að fáir vilja ferðast meðan faraldurinn geysar og því seljast ekki nóg sæti til að dekka kostnað. Ergo: áframhaldandi taprekstur.
Þetta hollt og gott að hafa hugfast fyrir stjórnir lífeyrissjóða landsins sem íhuga nú hvort fjárfesta eigi enn frekar í komandi hlutafjárútboði Icelandair. Feitt tap verið á þeim fjárfestingum hingað til að mestu með tilheyrandi búsifjum fyrir eldri borgara.
Íslenska flugfélagið segist hafa náð tökum á rekstrinum, framtíðin sé súperdúper og því kjörið að kaupa bréf fyrir milljarða króna í viðbót við það sem brunnið hefur upp síðustu árin.
En þá ber að líta til þess að Nostradamus er ekki starfsmaður Icelandair. Enginn þar á bæ hefur minnstu hugmynd um hvort þjóðir heims ná tökum á kórónafaraldrinum á næstu vikum, mánuðum, árum eða jafnvel aldrei. Ef vírusinn heldur áfram að gera illt verra eins og nú er að gerast víðast hvar í heiminum er morgunljóst að enginn heilvita sál er að fara að fljúga mikið. Og ef enginn er að fljúga er vitavonlaust fyrir flugfélög að græða peninga.
Nánar hér (áskrift).







