Sikiley, eða nokkrir aðrir staðir á Ítalíu, líklega ekki hátt skrifaðir hjá ferðaþyrstum næstu misserin. Fá lönd fengið eins mikla rassskellingu vegna kóróna en Ítalía og enn sér ekki fyrir endann á hörmungunum. En ferðamálayfirvöld á Sikiley eru dálítið framúrstefnuleg og það kannski verður til þess að þú heimsækir þessa dásemdareyju fyrr en síðar.

Einn fjölmargra dásemdarstaða á Sikiley er þessi.

Framúrstefna er akkúrat það sem ferðamálayfirvöld hvarvetna í veröldinni þurfa nú á næstu vikum, mánuðum og jafnvel árum, til að freista þeirra sem þrá ekkert heitar en að ferðast. Og líklega hafa eyjaskeggjar á Sikiley tekið skýra forystu í baráttunni um ferðafólk á næstu mánuðum.

Hvernig þá?

Jú, yfirvöld á eynni ætla bókstaflega að NIÐURGREIÐA ferð þína. Það ætla þau að gera með því að ENDURGREIÐA þér þriðjung flugfargjaldsins til að komast til eyjunnar. Þau ætla að ENDURGREIÐA þér helming alls gistikostnaðar meðan á dvölinni stendur og ef það dugar ekki til þá færðu líka að heimsækja öll söfn eyjunnar þér algjörlega að kostnaðarlausu.

Þetta þýðir á mannamáli að heimsókn til Sikileyjar kostar þig sennilega 40% minna en eðlilegt væri ef þú grípur gæsina.

Jebbs. Dálítið annað plan en íslensk ferðaþjónusta er með. Það plan gengur bara út á að fá styrk frá ríkinu og vona það besta. Enginn þar með framtíðarplön virðist vera.

Til að nýta sér þessa príma þjónustu Ítalanna og um leið heimsækja einhverja skemmtilegustu eyju Evrópu að okkar mati þarf fólk að fylgjast grannt með opinberum ferðavef Sikileyjar. Þar verður formlega tilkynnt hvenær tilboðið verður í boði þegar flugsamgöngur til og frá komast í sæmilegt horf.